Ársreikningur 2018
Skýrsla og áritun forstjóra
Afkoma ÁTVR á árinu 2018 var í samræmi við áætlun ársins. Hagnaður ársins var 1.111 m.kr. Eignir námu 6.334 m.kr, skuldir voru 1.772 m.kr. og eigið fé nam 4.561 m.kr. í árslok 2018. Greiddur var 1.000 m.kr. arður í ríkissjóð.
Áfengi var selt fyrir 28.589 m.kr. með virðisaukaskatti. Sala áfengis í lítrum jókst um 0,54% frá árinu á undan og seldust 21.985 þús. lítrar, þar af var bjórsala 17.262 þús. lítrar.
Sala tóbaks nam 11.708 m.kr. með virðisaukaskatti. ÁTVR innheimtir tóbaksgjald. Gjaldið nam 5.571 m.kr. á árinu 2018 og hækkaði um 71 m.kr. frá árinu 2017. Sala vindlinga í magni minnkaði um 3%. Sala vindlinga nam 882 þús. kartonum og af vindlum seldust 4.478 þúsund stykki.
Selt magn neftóbaks var 44.671 kg og var það um 19% aukning frá fyrra ári.
Á árinu fengu 700 starfsmenn greidd laun hjá ÁTVR. Margir eru í hlutastarfi. Ársverk voru 354 og hefur þeim fjölgað um 20 frá 2017.
Ýmsar framkvæmdir voru á árinu. Meðal þeirra helstu var að vínbúðin á Ísafirði var flutt í nýtt húsnæði, unnið var að lagfæringum í vínbúðinni á Dalvegi og vínbúðin í Skútuvogi var stækkuð. Vínbúðin á Höfn í Hornafirði var endurnýjuð og stækkuð og unnið var að endurbótum í vínbúðinni á Flúðum, Sauðárkróki og Hvolsvelli. Framkvæmdir voru í fullum gangi við stækkun Dreifingarmiðstöðvar og í tengslum við það var unnið að lóðarframkvæmdum að Stuðlahálsi. Rafhleðslustöðvar fyrir bíla voru settar upp á Stuðlahálsi.
Lög um um gjald af áfengi og tóbaki var breytt í upphafi árs þannig að bæði áfengisgjald og tóbaksgjald var hækkað um 2%.
Forstjóri ÁTVR staðfestir ársreikning fyrirtækisins fyrir árið 2018 með undirritun sinni.
Reykjavík, 29. mars 2019
Ívar J. Arndal, forstjóri
Áritun endurskoðenda
Til fjármála- og efnahagsráðherra
Endurskoðun á meðfylgjandi ársreikningi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) fyrir árið 2018 var framkvæmd samkvæmt lögum nr. 46/2016, um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Ársreikningurinn hefur að geyma skýrslu forstjóra, rekstrarreikning, efnahagsreikning, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.
Ríkisendurskoðandi staðfestir samkvæmt bestu vitund að í skýrslu forstjóra eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.
Það er álit ríkisendurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af fjárhagsstöðu ÁTVR 31. desember 2018, afkomu þess og breytingu á handbæru fé á árinu 2018, í samræmi við lög um ársreikninga.
Grundvöllur fyrir áliti
Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla fyrir opinbera aðila. Ábyrgð ríkisendurskoðanda samkvæmt þeim stöðlum er nánar lýst hér síðar. Ríkisendurskoðandi er óháður ÁTVR og hefur unnið í samræmi við lög nr. 46/2016, um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, og siðareglur alþjóðasamtaka ríkisendurskoðenda (INTOSAI). Ríkisendurskoðandi telur að við endurskoðunina hafi verið aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að undirbyggja álit á ársreikningnum.
Ábyrgð forstjóra á ársreikningnum
Forstjóri er ábyrgur fyrir gerð og framsetningu ársreikningsins í samræmi við lög um ársreikninga, settar reglur og fyrirmæli. Hann er einnig ábyrgur fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er að sé til staðar við gerð og framsetningu ársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Við gerð ársreiknings er forstjóri ábyrgur fyrir því að meta rekstrarhæfi ÁTVR og setja inn skýringu ef þess er þörf.
Ábyrgð ríkisendurskoðanda á endurskoðun ársreikningsins
Markmið ríkisendurskoðanda er að afla nægjanlegrar vissu um að ársreikningurinn sé án verulegra annmarka, hvort sem er af völdum sviksemi eða mistaka og að gefa út áritun sem felur í sér álit á ársreikningnum.
Nægjanleg vissa er mikið öryggi, en ekki trygging þess að endurskoðun sem framkvæmd er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla fyrir opinbera aðila muni uppgötva allar verulegar skekkjur séu þær til staðar. Skekkjur geta orðið vegna mistaka eða sviksemi og eru álitnar verulegar ef þær gætu haft áhrif á fjárhagslega ákvarðanatöku notenda ársreikningsins, einar og sér eða samanlagðar.
Framkvæmd endurskoðunar hjá ríkisendurskoðanda er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla fyrir opinbera aðila og hún byggir á faglegri dómgreind og gagnrýni. Þá ber við endurskoðunina að fara eftir ákvæðum laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Í þessu felst að ríkisendurskoðanda ber að:
- Greina og meta hættuna á verulegri skekkju í ársreikningnum, hvort sem er vegna mistaka eða sviksemi, skipuleggja og framkvæma endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeirri hættu og afla endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að undirbyggja álit á reikningnum. Hættan á að uppgötva ekki verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að uppgötva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur falið í sér samsæri, fölsun, villandi framsetningu ársreiknings, að einhverju sé viljandi sleppt eða að farið sé framhjá reglum innra eftirlits.
- Afla skilnings á innra eftirliti í þeim tilgangi að skipuleggja viðeigandi endurskoðunaraðgerðir og meta hvort það tryggir viðunandi árangur.
- Meta hvort reikningsskilaaðferðir og reikningshaldslegt mat stjórnenda ásamt tengdum skýringum séu viðeigandi í samræmi við reikningsskilareglur fyrir opinbera aðila.
- Meta í heild sinni hvort ársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum, meta framsetningu, uppbyggingu og innihald, þar með talið skýringar með tilliti til glöggrar myndar.
Ríkisendurskoðandi upplýsir forstjóra meðal annars um áætlað umfang og tímasetningu endurskoðunarinnar og mikilvæg atriði sem kunna að koma upp við endurskoðunina, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirliti.
Ríkisendurskoðun, 29. mars 2019
Skúli Eggert Þórðarson, ríkisendurskoðandi
Óskar Sverrisson, endurskoðandi
Rekstrarreikningur árið 2018
Skýringar | 2018 | 2017 | |
---|---|---|---|
Rekstrartekjur | |||
Sala áfengis | 25.756.247 | 24.942.443 | |
Sala tóbaks | 9.441.805 | 9.252.443 | |
Sala umbúða o.fl. | 93.106 | 80.714 | |
35.291.158 | 34.275.600 | ||
Rekstrargjöld | |||
Vörunotkun | 10 | 29.824.379 | 29.065.646 |
Laun og launatengd gjöld | 11-13 | 2.806.016 | 2.463.048 |
Húsnæðiskostnaður | 634.417 | 582.228 | |
Sölu- og dreifingarkostnaður | 244.934 | 236.761 | |
Stjórnunar- og skrifstofukostnaður | 379.510 | 345.365 | |
Annar rekstrarkostnaður | 47.344 | 35.860 | |
Afskriftir | 15 | 237.010 | 208.226 |
34.173.610 | 32.937.134 | ||
Rekstrarhagnaður | 1.117.548 | 1.338.466 | |
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) | 14 | (6.289) | 28.082 |
Hagnaður ársins | 1.111.259 | 1.366.548 | |
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Efnahagsreikningur 31. desember 2018
Skýringar | 2018 | 2017 | |
---|---|---|---|
Eignir | |||
Rekstrarfjármunir | 4, 15 | 1.318.810 | 1.231.450 |
Eignarhlutir í öðrum félögum | 5, 16 | 7.500 | 7.500 |
Fastafjármunir samtals | 1.326.310 | 1.238.950 | |
Birgðir | 6, 17 | 2.123.079 | 2.002.246 |
Viðskiptakröfur | 7, 18 | 1.824.424 | 1.728.890 |
Handbært fé | 8 | 1.059.812 | 1.372.613 |
Veltufjármunir samtals | 5.007.315 | 5.103.749 | |
Eignir samtals | 6.333.625 | 6.342.699 | |
Eigið fé og skuldir | |||
Eigið fé | |||
Óráðstafað eigið fé | 19 | 4.561.215 | 4.449.956 |
Eigið fé samtals | 4.561.215 | 4.449.956 | |
Skammtímaskuldir | |||
Lánardrottnar | 9 | 1.073.709 | 1.279.448 |
Aðrar skammtímaskuldir | 698.701 | 613.295 | |
Skammtímaskuldir samtals | 1.772.410 | 1.892.743 | |
Eigið fé og skuldir samtals | 6.333.625 | 6.342.699 | |
Skuldbindingar | 20 |
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Sjóðstreymi árið 2018
Skýringar | 2018 | 2017 | |
---|---|---|---|
Rekstrarhreyfingar | |||
Hagnaður ársins | 1.111.259 | 1.366.548 | |
Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á sjóðstreymi: | |||
Afskriftir | 15 | 237.010 | 208.226 |
Tap (söluhagnaður) af fastafjármunum | (406) | (4.480) | |
Veltufé frá rekstri | 1.347.863 | 1.570.294 | |
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum: | |||
Birgðir, (hækkun) | (120.833) | 112.180 | |
Skammtímakröfur, (hækkun) | (95.534) | (24.870) | |
Skammtímaskuldir, hækkun | (120.333) | (211.518) | |
(336.700) | (124.208) | ||
Handbært fé frá rekstri | 1.011.163 | 1.446.086 | |
Fjárfestingarhreyfingar | |||
Fasteignir | 15 | (100.600) | (30.681) |
Innréttingar og annar búnaður | 15 | (167.564) | (195.704) |
Bifreiðar | 15 | (59.384) | (57.740) |
Söluverð rekstrarfjármuna | 3.584 | 7.258 | |
Fjárfestingarhreyfingar | (323.964) | (276.867) | |
Fjármögnunarhreyfingar | |||
Arður til ríkissjóðs | 19 | (1.000.000) | (1.750.000) |
Fjármögnunarhreyfingar | (1.000.000) | (1.750.000) | |
Hækkun (lækkun) á handbæru fé | (312.801) | (580.781) | |
Handbært fé í ársbyrjun | 1.372.613 | 1.953.394 | |
Handbært fé í lok ársins | 1.059.812 | 1.372.613 | |
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Skýringar
Reikningsskilaaðferðir
Grundvöllur reikningsskila
- Ársreikningur ÁTVR er gerður í samræmi við lög nr. 3/2006 um ársreikninga og reglugerð nr. 696/1996 um framsetningu og innihald ársreikninga og samstæðureikninga.
Ársreikningurinn byggir á kostnaðarverðsreikningsskilum og er gerður eftir sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður. Ársreikningurinn er gerður í íslenskum krónum.
Skattar - Ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki greiða almennt ekki tekjuskatta.
Erlendir gjaldmiðlar og innlendar vísitölur - Eignir í erlendum gjaldmiðlum eru umreiknaðar í íslenskar krónur á kaupgengi í árslok en skuldir eru umreiknaðar á sölugengi. Viðskipti í erlendum gjaldeyri á árinu eru umreiknuð í íslenskar krónur á viðskiptadegi. Gengismunur sem myndast er færður í rekstrarreikning.
Peningalegar eignir og skuldir sem bundnar eru verðtryggingu eru færðar miðað við vísitölur sem tóku gildi 1. janúar 2018. Breytingar sem myndast eru færðar í rekstrarreikning.
Rekstrarfjármunir - Varanlegir rekstrarfjármunir eru færðir til eignar á kostnaðarverði. Frá kostnaðarverði eru dregnar reiknaðar afskriftir.
Kostnaðarverð varanlegra rekstrarfjármuna samanstendur af kaupverði og öllum kostnaði við að koma eignunum á viðeigandi stað og í nothæft ástand.
Afskriftir eru reiknaðar sem fastur árlegur hundraðshluti af kostnaðarverði miðað við áætlaðan endingartíma og eignarhaldstíma.
Eignarhlutar í öðrum félögum - Eignarhlutar í félögum eru færðir á nafnverði.
Birgðir - Birgðir samanstanda af endursöluvörum og rekstrarvörum. Birgðirnar eru metnar á síðasta innkaupsverði að teknu tilliti til gallaðra og úreltra vara.
Viðskiptakröfur - Greiðslukortakröfur eru færðar meðal viðskiptakrafna. Viðskiptakröfur eru færðar á kostnaðarverði.
Handbært fé - Handbært fé samanstendur af sjóði og bankainnstæðum.
Viðskiptaskuldir - Viðskiptaskuldir eru færðar á kostnaðarverði.
Vörunotkun - Tóbaksgjald er innheimt við sölu tóbaks og er því skilað mánaðarlega til Tollstjóra. Tóbaksgjaldið er skilgreint sem hluti af kostnaðarverði seldra vara í bókhaldi ÁTVR. Alls námu greiðslur tóbaksgjalds 5.571 m.kr. á árinu 2018.
Sundurliðun vörunotkunar
2018 | 2017 | |
---|---|---|
Vörunotkun, áfengi | 22.012.493 | 21.372.311 |
Vörunotkun, tóbak | 7.793.202 | 7.669.426 |
Vörunotkun, umbúðir | 18.684 | 23.909 |
29.824.379 | 29.065.646 | |
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Starfsmannamál
- Laun og launatengd gjöld sundurliðast þannig:
2018 | 2017 | |
---|---|---|
Dagvinnulaun | 1.536.427 | 1.353.554 |
Yfirvinna | 654.812 | 575.659 |
Launatengd gjöld | 487.182 | 441.618 |
Viðbótarframlag til lífeyrissjóðs | 112.144 | 71.701 |
Áfallið reiknað orlof, breyting | 15.452 | 20.516 |
2.806.016 | 2.463.048 | |
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
- Launagjöld hækka um 13,9% milli ára. Reiknuð ársverk á árinu 2018 voru 354 en ársverk reiknuð með sama hætti árið 2017 voru 334 sem er hækkun 20 ársverk eða 6%. Hækkun launavístölu 2018 var 6%.
Laun og launatengd gjöld vegna forstjóra námu 21,9 m.kr. en voru 19,7 m.kr. árið á undan.
Áunnið orlof starfsmanna til desemberloka er reiknað og fært í ársreikninginn. Það nam 148,4 m.kr. í árslok 2018 en til samanburðar var það 132,9 m.kr. árið áður. - Skuldbindingar ÁTVR vegna eftirlauna núverandi og fyrrverandi starfsmanna voru gerðar upp á árinu 1999. Skuldbindingar sem falla til árlega eru gerðar upp við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins jafnóðum. Samkvæmt uppgjöri LSR námu lífeyrisskuldbindingar B-deildar í árslok 2018 10,9 m.kr. Í lögum nr 127/2016 var gerð breyting um aukaframlag til A-deildar lífeyrisjóðs starfsmanna ríkisins. Hlutur ÁTVR árið 2018 101,2 m.kr en var 60,6 m.kr 2017.
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld - Sundurliðun fjármunatekna og (fjármagnsgjalda)
2018 | 2017 | |
---|---|---|
Vaxtatekjur | 91.632 | 131.884 |
Arðstekjur | 3.150 | 1.500 |
Þóknanir vegna debet- og kreditkorta | (79.327) | (78.005) |
Fjármagnstekjuskattur | (20.761) | (26.243) |
Vaxtagjöld | (983) | (1.054) |
(6.289) | 28.082 | |
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Rekstrarfjármunir
- Varanlegir rekstrarfjármunir og afskriftir greinast þannig:
Bifreiðar | Fasteignir | Innréttingar og annar búnaður | Samtals | |
---|---|---|---|---|
Stofnverð 1.1.2018 | 282.823 | 1.266.404 | 1.274.633 | 2.823.860 |
Viðbót á árinu | 59.384 | 100.600 | 167.564 | 327.548 |
Selt og niðurlagt á árinu | (39.061) | 0 | (287.398) | (326.459) |
Stofnverð 31.12.2018 | 303.146 | 1.367.004 | 1.154.799 | 2.824.949 |
Afskrifað 1.1.2018 | 140.674 | 748.508 | 703.229 | 1.592.410 |
Afskrifað á árinu | 37.713 | 23.395 | 148.366 | 209.474 |
Selt og niðurlagt á árinu | (37.211) | (258.534) | (295.745) | |
Afskrifað 31.12.2018 | 141.176 | 771.903 | 593.060 | 1.506.139 |
Bókfært verð 31.12.2018 | 161.970 | 595.101 | 561.739 | 1.318.810 |
Afskriftarhlutföll | 12-15% | 2-4% | 12-20% |
Gjaldfærð afskrift ársins var 209,5 m.kr og niðurlagðar eignir voru 27,5 m.kr.
Fasteignamat og vátryggingamat eigna félagsins í árslok greinist þannig:
Bókfært verð | Fasteignamat | Brunabótamat | |
---|---|---|---|
Fasteignir og lóðir | 595.101 | 3.079.645 | 3.461.940 |
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Eignarhlutar í félögum
- Hlutabréf í Endurvinnslunni hf. eru færð á nafnverði 7.500 þús. kr. Á árinu 2018 greiddi félagið 3.150 þús. kr. í arð til ÁTVR.
Birgðir - Birgðir um áramót skiptast í áfengi, tóbak, umbúðir og rekstrarvörur:
2018 | 2017 | |
---|---|---|
Áfengi | 1.832.048 | 1.742.103 |
Tóbak | 260.207 | 218.853 |
Umbúðir | 6.963 | 17.552 |
Rekstrarvörubirgðir | 23.861 | 23.738 |
2.123.079 | 2.002.246 | |
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Viðskiptakröfur
- Viðskiptakröfur sundurliðast þannig:
2018 | 2017 | |
---|---|---|
Kröfur vegna greiðslukorta | 1.704.642 | 1.613.526 |
Aðrar viðskiptakröfur | 119.782 | 115.364 |
1.824.424 | 1.728.890 | |
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Eigið fé
- Yfirlit eiginfjárreikninga
Óráðstafað eigið fé | |
---|---|
Eigið fé 1.1. | 4.449.956 |
Hagnaður skv. rekstrarreikningi | 1.111.259 |
Arður til ríkissjóðs | (1.000.000) |
Eigið fé 31.12 | 4.561.215 |
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Önnur mál
- Í tengslum við starfsemi ÁTVR voru 40 húsaleigusamningar í gildi í árslok 2018.
Kennitölur - Fimm ára yfirlit í milljónum króna
2018 | 2017 | 2016 | 2015 | 2014 | |
---|---|---|---|---|---|
Rekstur: | |||||
Rekstrartekjur | 35.291 | 34.276 | 33.058 | 29.395 | 28.645 |
Rekstrargjöld | (33.937) | (32.729) | (31.216) | (27.985) | (27.146) |
Rekstrarhagn. f. afskr. | 1.354 | 1.547 | 1.842 | 1.410 | 1.499 |
Afskriftir | (237) | (208) | (222) | (178) | (205) |
Rekstrarhagnaður | 1.117 | 1.339 | 1.620 | 1.232 | 1.295 |
Hreinar fjárm.tekjur | -6 | 28 | 9 | -11 | -7 |
Hagnaður ársins | 1.111 | 1.367 | 1.629 | 1.221 | 1.288 |
Efnahagur: | |||||
Fastafjármunir | 1.326 | 1.239 | 1.166 | 1.227 | 1.238 |
Veltufjármunir | 5.008 | 5.104 | 5.772 | 4.716 | 4.914 |
Eignir alls | 6.334 | 6.343 | 6.938 | 5.943 | 6.152 |
Eigið fé | 4.561 | 4.450 | 4.834 | 4.204 | 4.483 |
Skammtímaskuldir | 1.773 | 1.893 | 2.104 | 1.739 | 1.669 |
Eigið fé og skuldir alls | 6.334 | 6.343 | 6.938 | 5.943 | 6.152 |
Helstu kennitölur um afkomu og fjárhagsstöðu fyrirtækisins á síðustu fimm árum:
2018 | 2017 | 2016 | 2015 | 2014 | |
---|---|---|---|---|---|
Rek.hagn.f.afskr./Tekjur | 3,8% | 4,5% | 5,6% | 4,8% | 5,2% |
Veltufjárhlutfall | 2,82 | 2,70 | 2,74 | 2,71 | 2,94 |
Eiginfjárhlutfall | 72,0% | 70,2% | 69,7% | 70,7% | 72,9% |
Arðsemi eigin fjár | 25,0% | 28,2% | 38,8% | 27,2% | 28,0% |